| M | T | W | T | F | S | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Aug | ||||||
| 1 | 2 | |||||
| 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Skrifað
1. August, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Röfl.
Keyrði til Reykjavíkur til að vinna. Keyrði til Keflavíkur og vann svolítið meira. Þegar ég var búinn að vinna fór ég í vinnufötin og vann svolítið í íbúðinni minni. Jú og sendi tollmiðlun greiðsluupplýsingar um nýja teið mitt sem er greinilega komið til landsins og ég fæ vonandi í dag (föstudag). Væri ekki slæmt að eiga gott te um helgina.
Skrifað
16. June, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Uncategorized.
Lögreglan kvartar sáran yfir því að fólk beri minni virðingu fyrir störfum þeirra en áður. Mér var ungum kennt, og hef reynt að fylgja því, að ef maður vill afla virðingar annarra verður maður að sýna öðrum virðingu.
Óhófleg beiting valds og vopna (já piparúði er vopn) er ekki leiðin til að afla virðingar fyrir störf lögreglunnar. Þegar fólk hættir að sýna lögreglunni virðingu er erfiðara að hafa stjórn á fólki og þá missa sumir sig í að sýna vald sitt og beita vopnum sem hefur einmitt þau áhrif að virðing fyrir störfum lögreglunnar minnkar enn frekar.
Viljum við svo að lögreglan fái rafbyssur til að beita á óstýriláta?
Skrifað
22. May, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Uncategorized.
Skrifað
15. May, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Röfl.
Einn af mínum mörgu eiginleikum er að ég er mjög vanafastur á marga hluti. Ég hef reyndar einnig gefið mig út fyrir að eiga auðvelt með að aðlagast breyttum aðstæðum og vinnubrögðum en þegar það gerist er ég í raun bara að koma mér upp nýjum venjum sem ég hangi á þangað til ég fæ tilefni til annars.
Dæmi um þessa vanafestu er að ég hef mjög strangt skipulag á því hvaða hlutir fara í hvaða vasa. Lyklar fara í hægri jakkavasann. Ef ég er ekki í jakka fara þeir í hægri buxnavasann að framan. Kveikjari fer í vinstri buxnavasann. Peningar og klink fara í hægri rassvasann og gítarneglur og miðar ýmiskonar í vinstri rassvasann. Síminn, veskið og tóbakið eiga að sjálfsögðu sína vasa líka. Það hefur komið fyrir að ég hef týnt lyklunum mínum í heilan dag af því að þeir fóru í vitlausan vasa og mér datt bara ekki í hug að leita í öðrum vösum en lyklavasanum.
Eins legg ég ekki frá mér mikilvæga hluti eins og lykla nema á ákveðnum stöðum. Þegar ég fer út úr húsi get ég kíkt á þessa staði og ef lyklarnir eru ekki þar veit ég að ég er með þá í vasanum.
En afhverju er ég að spá í þessu núna..? Jú, ég lagði frá mér lyklana á vitlausan stað og er læstur úti
Skrifað
5. May, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Uncategorized.
Jæja þá er að fara að pakka niður. Þessi ferð er búin að heppnast með eindæmum vel. Þrátt fyrir að hafa ekki náð að toppa fyrstu tónleikana okkar á Midi hátíðinni voru hinir tveir alveg frábærir. á Laugardagskvöldið spiluðum við á Get Lucky Bar. Þar var mjög skrítin stemning. Staðurinn virtist vera helst sóttur af efri stétt af krökkum. Drykkirnir voru mjög dýrir þar og krakkarnir ekki eins viljugir að sleppa sér lausum. Á Íslenskan mælikvarða var rífandi stemning, en frekar dauflegt miðað við það sem við fengum á Midi hátíðinni. Í gærkveldi spiluðum við á Mao Live Bar sem er með flottari millistórum tónleikastöðum sem ég hef spilað á. Bæði við og Vicky Pollard vorum á flugi og Hrói hljóðmaðurinn okkar sá til þess að stemningin skilaði sér út í sal og ekki stóð á viðbrögðum frá áhorfendum.
Við erum búin að hitta mikið af allskonar skemmtilegu fólki, sitja fyrir á mörgum myndum og hitta kontakta fyrir frekari tónleikahald í nokkrum löndum. Nú ætla ég hinsvegar að fara að pakka niður áður en ég lognast út af og hvíla mig svo fyrir langa ferð heim.
Skrifað
3. May, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Uncategorized.
Eftir að ég skrifaði síðustu færslu í gær fórum út að borða. Þar var hundur á matseðlinum og að sjálfsögðu urðum við að prófa… “Tastes like chicken” á ekki við í þessu tilfelli því þetta kjöt var ekki líkt neinu öðru sem ég hef smakkað. Svolítið gróft og þurrt og áferðin minnti helst á sauðakjöt. Ekki sérstaklega gott en alls ekki vont heldur.
Gufusoðið hundakjöt á grænmetisbeði.
Nú er rigning í Beijing sem er ágætt því samfara því er smá snertur af fersku lofti og hún skolar rykinu af götunum.
Við spiluðum á Midi festivalinu í gærkvöldi. Fyrstu tónleikarnir af þremur fyrir rokkþyrsta Kínverja. Í stuttu máli voru þetta frábærir tónleikar, pakkaður salur og stórkostleg stemning. Á köflum voru lætin svo mikil að við áttum í vandræðum með að heyra í okkur sjálfum fyrir látum í áhorfendum og ég man eftir að hafa hugsað: “nú veit ég hvernig Bítlunum leið”. Eftir að við komum af sviði stóð fólk svo í röðum til að fá teknar myndir af sér með okkur.
Á eftir okkur spiluðu Vicky Pollard sem eru að ferðast með okkur og ekki fengu þau síðri viðtökur. Stelpuhljómsveit (fyrir utan Orra) sem rokkar feitt er greinilega eitthvað sem Kínverjar kunna að meta.
Í kvöld spilum við á “Get Lucky Bar” sem er ekki vændishús eins og nafnið kann að gefa í skyn. Mér skilst að þetta sé flottur staður og þarna sé gjarnan rífandi stemning. Það verður gaman að sjá hvort við getum toppað gærkvöldið.
Þangað til seinna…
Skrifað
1. May, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Uncategorized.
Fyrstu tónleikar annað kvöld (föstudag) og svo á laugardag og sunnudag líka. Hlakka mikið til að spila fyrir Kínverja. Það er dásamlegt að ganga hér um hverfin, upplifa stemninguna og hitta fólk. Ef maður heldur sig utan helstu túristastaðana hittir maður fólk sem er mjög áhugasamt um okkur vesturlandabúana og er gjarnan til í að spjalla svolítið þrátt fyrir að fæstir tali skiljanlega ensku. Ef maður hittir einn sem getur gert sig skiljanlegan koma gjarnan nokkrir aðrir til að taka þátt í spjallinu. Elvar ákvað að fá sér klippingu á einni local klippistofunni hérna og við Heiða biðum á meðan. Þegar við v0rum búin að sitja dálitla stund var fólk úr nágrenninu komið að kíkja á útlendingana og sýna börnunum skrítna fólkið.
Í morgun fórum við á markað sem greinilega var ætlaður túristum. Þar var ekkert af spennandi vörum, allt sama draslið, en maður gat ekki gengið þarna um fyrir áreiti frá sölufólki sem reyndi að selja okkur útlendingunum vörur á uppsprengdu verði. Ef maður gerði þau mistök að hægja á sér eða að gefa færi á augnsambandi var maður orðinn umkringdur af sölufólki sem var staðráðið að sleppa manni ekki. Mjög sjokkerandi og niðurlægjandi lífsreynsla.
Það þarf varla að taka það fram að maturinn hérna er frábær. Það er mjög spennandi að fá sér að borða hérna því maður veit sjaldnast hvað maður er að panta. Oft hefur maður aðeins ensk heiti á einhverju sem maður þekkir ekki, en stundum er hægt að styðjast við myndir. Hér tíðkast það að pantaðir eru nokkrir réttir og svo borða allir af öllu. Vel útilátin máltíð á svona milli-fínum og snyrtilegum stöðum með drykkjum kostar gjarnan um 4 - 500 krónur oft mun minna á mjög góðum en ekki eins snyrtilegum stöðum. Í dag afrekaði ég það að borða skjaldböku sem ég hef ekki smakkað áður. Kokkurinn kom meira að segja með hana fram svo hún gæti séð fólkið sem væri að fara að borða hana áður en hún fór í pottinn. Í sömu máltíð fengum við okkur Beijing önd og gómsætan kjúklingarétt. Ég hef ekki enn fengið niðurgang en bíð spenntur.
Mjög dæmigert fyrir Beijing, snyrtileg framhlið og kofaræflar þar fyrir innan.
Maður sér mikið af sofandi fólki út um allt. Þetta eru ekki útigangmenn heldur bara fólk sem þarf aðeins að hvíla sig í smá stund.
Svona götugrill út um allt. Hef ekki enn fengið mig til að smakka.
Not short, not long… medum short.
Þessi kíkti inn á klippistofuna rétt til að blása á sér hárið, laga smáatriðin.
“Sjáðu skrítna fólkið” var hún eflaust að segja.
Bannað að sprengja bíla… eða ?
Skrifað
1. May, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Ferðalög.
Jæja, þá er ég kominn með betra netsamband á herbergið. Komið hefur í ljós að þetta var óþarfa svartsýnisraus í mér í síðustu færslu. Peking er stórskemmtileg borg að heimsækja. Við erum komin með allavega þrenna tónleika sem við spilum á og allt á nokkuð góðum stöðum (er mér sagt). Gærdagurinn fór í að rölta um borgina og skoða okkur um. Núna er klukkan 00:30 að íslenskum tíma og ég ætla að rölta yfir götuna til að fá mér morgunmat. Skrifa meira í dag og hendi kannski inn nokkrum myndum.
Skrifað
29. April, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Uncategorized.
Jæja eftir um 27 tíma ferðalag erum við komin á hótelið okkar í Beijing. Ég verð að segja að fyrstu kynnin af borginni eru ekki til að hoppa hæð sína fyrir. Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar maður er að lenda að maður sér ekki til jarðar fyrir mengun fyrr en rétt áður en flugvélin er lent. Mengunarskýið yfir borginni er svona eins og létt íslensk þoka og maður finnur vel fyrir því í hálsinum og nefinu. Borgin er skítug og, það sem ég hef enn séð af henni, óaðlaðandi. Vil taka það fram að ég er eingöngu búinn að keyra frá flugvellinum að hótelinu, er ekkert farinn að skoða mig um ennþá.
Starfsmaður Midi hátíðarinnar sem sér um bókanir á erlendum hljómsveitum tók á móti okkur á flugstöðinni. Hann hafði ekki upplífgandi fréttir handa okkur. Það er verið að íhuga að fella alveg niður allt tónleikahald á vegum hátíðarinnar vegna mikils lestarslyss sem var hér í Kína (hef ekki séð fréttirnar ennþá). Ef það verður raunin eigum við eingöngu eina tónleika bókaða hér sem ég er mjög svekktur með því ég var ekki að koma hingað til að vera túristi. Samt er ekki alveg útséð með þetta og þeir ætla að gera hvað þeir geta til að láta okkur spila einhverstaðar.
Skrifa aftur þegar ég verð kominn í betra skap (og kannski búinn að sofa örlítið)
Skrifað
26. April, 2008 af
Sverrir .
Flokkar: Ferðalög, Tónlist.
Jæja gott fólk. Eftir langa fjarveru ætla ég ekki að koma inn með látum og fara að tjá skoðanir mínar á deilu lögreglunar við vörubílstjóra að öðru leiti en því að mér finnst gott að íslendingar (þótt misvitrir séu) séu farnir að standa upp á afturlappirnar og mótmæla þegar þeim er misboðið. Meira af þessu.
En ástæðan fyrir Því að ég skrifa þessa færslu er sú að láta vita að ég er að fara til Kína þann 28.apríl og verð þar í eina 9 daga. Við (Hellvar) erum að fara að spila þar á Midi tónlistarhátíðinni sem að öllu jöfnu er stærsta rokk-tónlistarhátíð Kínverja. Í ár hvað svo við að 10 dögum áður en hátíðin átti að hefjast urðu Kínversk stjórnvöld eitthvað smeik við allan þennan mannfjölda þannig að hátíðinni var frestað fram yfir ólympíuleika og í staðinn slegið upp partíi með tveimur sviðum til að koma á móts við þá erlendu listamenn sem voru búnir að gera allar ráðstafanir. Þar að auki eigum við bókaða tvenna tónleika á klúbbum í Peking.
Nú veit ég ekkert um hvernig nettengingar eru í Kína en ég mun reyna að blogga eins og hægt er á meðan ferðinni stendur. Einnig má geta þess að Rúv ætlar að birta Kína-blogg á rokklands (held ég frekar en popplands) vefnum.
Update: Bloggið er líklega birt á slóðinni http://www.ruv.is/heim/vefir/poppland/blogg/
Annað sem má geta er að lag með Hellvar (Give Me Gold) hefur verið valið á safndisk sem verður dreift með einhverju Japönsku tónlistartímariti (veit ekki hvað það heitir) og erum við að fara í myndatöku fyrir þetta tímarit í kvöld. Nú er það bara að leggja undir sig Asíu eins og hún leggur sig.
Þangað til næst…